Starfsemi
Þjónusta
Auk þess að sinna verkefnum á sviði rannsókna, undirbúnings framkvæmda og virkjunar vatnsorku og jarðvarma fyrir Landsvirkjun tekur fyrirtækið að sér verkefnastjórnun fyrir innlenda og erlenda aðila við orkuframkvæmdir og endurnýjun orkuvera í rekstri. Starfsmenn fyrirtækisins hafa bæði áratuga reynslu og þekkingu til að þróa orkuverkefni frá fyrstu hugmynd að fullbúinni virkjun og með aðstoð móðurfélagsins getum við aðstoðað eigendur við rekstur.
