Sérfræðiráðgjöf
Sérfræðiráðgjöf
Starfsmenn Landsvirkjun Power hafa áratuga reynslu í undirbúningi og byggingu vatnsafls- og jarðgufuvirkjana og háspennuflutningskerfa.
Um er að ræða sérfræðinga á fjölmörgum fagsviðum, svo sem vatnamælingum og vatnafræði, kortagerð, jarðfræði, náttúrufræði, auk fjölmargra sérsviða verkfræði. Styrkleiki starfsmannanna er að geta mótað eða tekið hugmynd að virkjun eða orkuflutningi og látið hana verða að fullskapaðri framkvæmd í áfallalausum rekstri.
