Um Landsvirkjun Power

Um okkur

Landsvirkjun Power er dótturfélag Landsvirkjunar. Hjá Landsvirkjun Power starfa um 40 manns sem flestir hafa starfað á verkfræði- og framkvæmdasviði Landsvirkjunar um árabil.

Landsvirkjun Power er ætlað að taka þátt í hvers konar fjárfestingu á sviði orkumála, þar með talið í fjárfestingum í virkjunum og raforkukerfum beint eða óbeint.

Við síðastliðin áramót var verkfræði- og framkvæmdasvið Landsvirkjunar lagt niður. Tæplega 40 starfsmenn sem þar störfuðu fluttust til nýja fyrirtækisins ásamt þeim verkefnum sem þeir hafa með höndum. Þannig mun Landsvirkjun Power sjá um að ljúka þeim verkefnum sem tengjast Kárahnjúkavirkjun og halda utan um undirbúning virkjana í neðri hluta Þjórsár og jarðhitavirkjana á Norðausturlandi.


Um Landsvirkjun Power

Landsvirkjun Power er

LV Power er

Starfsmenn Landsvirkjun Power hafa mikla reynslu af fjölbreyttum verkefnum sem tengjast öllum þáttum virkjanaframkvæmda og orkuflutnings. Þeir hafa stýrt rannsóknum, undirbúningi, hönnun og byggingu allra vatnsaflsvirkjana og háspennulína sem reistar hafa verið fyrir Landsvirkjun á Íslandi frá árinu 1965.

Lesa meira
 

Landsvirkjun Power gerir

LV Power gerir

Landsvirkjun Power heldur við og eflir í einu félagi sérhæfða þekkingu á sviði viðskiptaþróunar, verkefnastjórnunar og tengdri þekkingu vegna virkjana og raforkukerfa innanlands sem erlendis. Tilgangur fyrirtækisins er einnig að leita að og taka þátt í fjárfestingarverkefnum innanlands og erlendis.

Lesa meira
 

Stoðflokkar



Leita á vefnum


Útlit síðu:

Um Landsvirkjun Power

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica