Dóttur- og hlutdeildarfélög
Íslensk jarðhitatækni ehf.
Fyrirtækið veitir ráðgjöf og verktöku á sviði jarðhitanýtingar. Það býður heildarlausnir fyrir virkjun borhola með öxuldjúpdælum, sem að stórum hluta eru smíðaðar á Íslandi.
HydroKraft Invest
Fyrirtækið er alþjóðlegt fjárfestingafélag sem ætlað er að fjárfesta í verkefnum á erlendri grundu sem tengjast endurnýjanlegri orkuvinnslu, með áherslu á vatnsafl. Heimasíða HydroKraft Invest
Hecla SAS
Fyrirtækið sérhæfir sig í starfsemi tengdri raforkuframleiðslu með vatnsorku og raforkuflutningi. Hecla SAS er staðsett í Frakklandi. Heimasíða Hecla SAS
Sipenco
Hlutverk fyrirtækisins er undirbúningur, hönnun, endurhönnun, bygging og rekstur á búnaði og kerfum sem tengjast raforkuframleiðslu og -flutningi. Sipenco er staðsett í Sviss.
