Landsvirkjun Power þátttakandi á HYDRO 2009
Bjarni Bjarnason, Guðmundur Pétursson og Dagur Georgsson tóku þátt í alþjóðlegu ráðstefnunni „HYDRO 2009“, sem var haldin í Lyon í Frakklandi í lok október s.l. Landsvirkjun Power var með kynningarbás um starfsemi fyrirtækisins ásamt HECLA dótturfyrirtæki LVP í París. HECLA starfar á sviði háspennulínubygginga í Frakklandi, aðallega fyrir orkuflutningsfyrirtækið RTE, sem er í eigu franska ríkisins.
Mikil aðsókn var að kynningarbásnum og upplýstu Guðmundur Pétursson og Dagur Georgsson, ásamt Jean Chauveau og Guillaume Suffy, frá HECLA áhugasama um starfsemi fyrirtækjanna. Vonast er til að einhver verkefni komi í kjölfarið.
Ráðstefnan var mjög fjölmenn, eða um það bil 1.600 þátttakendur frá flestum löndum heims og þá fyrst og fremst frá orkufyrirtækjum, ráðgjöfum og framleiðendum á sviði vatnsorku.
Guðmundur t.v. og Dagur við kynningarbás LVP.
