Fréttir

Landsvirkjun Power sér um verkefnisstjórn upphafsframkvæmda Búðarhálsvirkjunar

15.2.2010

Landsvirkjun auglýsti þann 11. febrúar sl. útboð vegna upphafsframkvæmda við Búðarhálsvirkjun. Verkþættirnir sem boðnir verða út eru vinna við gröft jarðganga, skurða og vatnsþróar og tilheyrandi styrkingu með sprautusteypu.

Landsvirkjun Power mun annast verkefnastjórnun verksins samkvæmt samningi við Landsvirkjun, en hún hefur einnig séð um undirbúning þess hingað til.

Gert er ráð fyrir að unnið verði að undirbúningsverkunum nú í sumar og haust og að þeim verði lokið að fullu fyrir 1. desember 2010.

 

Senda grein


Stoðflokkar



Leita á vefnum


Útlit síðu:

Um Landsvirkjun Power

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica