Fréttir

Djúpborunarhola - IDDP

4.5.2010

Hópur sérfræðinga m.a. frá Háskóla Íslands, HS orku og Kemíu, auk Landsvirkjunar komu saman við djúpborunarholuna við Vítismóa í mars til að kanna möguleika á nýtingu holunnar.

 

Hópur sérfræðinga m.a. frá Háskóla Íslands, HS orku og Kemíu, auk Landsvirkjunar komu saman við djúpborunarholuna við Vítismóa í mars til að kanna möguleika á nýtingu holunnar. Holan er sú fyrsta af þremur sem áformað er að bora í djúpborunarverkefninu IDDP (sjá http://www.lvpower.is/verkefni/djupborun/nr/4) . Borun þessarar fyrstu holu fékk skjótan endi þegar borinn festist í hraunkviku sumarið 2009 á 2100 m dýpi.  Ætlunin var að bora niður á 4500 m dýpi.

Blástursprófun borholunnar og rannsókn vökvans gefur til kynna að mikill kraftur og hiti búi í holunni.  Efnagreining vökvans leiðir hins vegar í ljós að hann er mjög súr og því ætandi. Nauðsynlegt væri að meðhöndla hann áður en hægt yrði að hleypa honum á búnað til framleiðslu raforku.

Ef prófanir og rannsóknir ganga vel verður fljótlega tekin ákvörðun um framhaldið.  Hugsanlega verður þá hægt að tengja holuna inn á virkjunina.

Senda grein


Stoðflokkar



Leita á vefnum


Útlit síðu:

Um Landsvirkjun Power

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica