Gæðastefna

Gæðastefna

Gæðastefna Landsvirkjun Power

Viðskiptavinir

Veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu sem tryggi umsamin gæði og tímamörk. Lögð verði áhersla á virðissköpun fyrir viðskiptavini, eigendur og starfsmenn.

Samstarfsaðilar

Gera sömu kröfur til samstarfsaðila, verktaka og birgja og gerðar eru til eigin starfsmanna hvað fagmennsku og þjónustu varðar.

Þróun þekkingar og verklags

Viðhalda og efla þekkingu og færni starfsmanna til að sinna viðfangsefnum fyrirtækisins og taka virkan þátt í þróun nýtingar vatnsafls og jarðvarma.

Ytri kröfur

Starfsemin uppfylli opinberar kröfur og alþjóðasamninga sem við eiga hverju sinni.

Úrbætur og framþróun

Vinna samkvæmt kröfum ISO 9001 staðalsins og vinna að stöðugum úrbótum og framþróun gæðakerfisins með þátttöku allra starfsmanna í jákvæðum anda.


Stoðflokkar



Leita á vefnum


Útlit síðu:

Um Landsvirkjun Power

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica