Merki Landsvirkjun Power
Merki Landsvirkjunar Power er til í einni grunngerð. Þessa gerð merkisins ber alltaf að nota þegar því verður við komið. Þegar merkið er notað ofan á dökkan grunn eða mynd má hafa það hvítt.
Ávallt skal gæta þess að vel „lofti“ um merkið. Merkið má aldrei fylla upp í flötinn sem það kemur á. Ágæt þumalfingursregla er að hafa svæðin beggja vegna við orðið „Landsvirkjun“ ekki minni en breidd „kassans“ í merkinu. Á PowerPoint-grunni má merkið ekki vera breiðara en 1/6 af breidd grunnsins.
Þegar merkið er notað sem bréfhaus skal það vera nálægt toppi og á miðju blaðsins.
Þegar merkið er notað framan á skýrslu eða bækling skal það vera nálægt botni og í miðju.
Um það sem má ekki:
- Hvaða vörumerki fyrirtækis sem er skal vera meðhöndlað með virðingu. Táknmynd Landsvirkjun Power er sett fram á sérstakan hátt og því skal ekki breyta.
- Leturgerðinni skal ekki breyta.
- Litunum skal ekki breyta.
- Táknmyndin skal ekki vera brotin niður eða útsetningu breytt.
Merkið á PNG sniði: Merkið á gegnsæjum grunni Svart hvít útgáfa
Merkið á JPG sniði: Merkið í 300 pát upplausn
