Þekking og hæfni
LV Power er

Landsvirkjun Power er

Starfsmenn Landsvirkjun Power hafa mikla reynslu af fjölbreyttum verkefnum sem tengjast öllum þáttum virkjanaframkvæmda og orkuflutnings. Þeir hafa stýrt rannsóknum, undirbúningi, hönnun og byggingu allra vatnsaflsvirkjana og háspennulína sem reistar hafa verið fyrir Landsvirkjun á Íslandi frá árinu 1965.

Verkefni sem tengjast undirbúningi, hönnun og byggingu jarðvarmavirkjana eru einnig snar þáttur í starfsemi Landsvirkjun Power.

Sérfræðiráðgjöf

Starfsmenn Landsvirkjun Power hafa áratuga reynslu í undirbúningi og byggingu vatnsafls- og jarðgufuvirkjana og háspennuflutningskerfa. Um er að ræða sérfræðinga á fjölmörgum fagsviðum, svo sem vatnamælingum og vatnafræði, kortagerð, jarðfræði, náttúrufræði, auk fjölmargra sérsviða verkfræði. Styrkleiki starfsmannanna er að geta mótað eða tekið hugmynd að virkjun eða orkuflutningi og látið hana verða að fullskapaðri framkvæmd í áfallalausum rekstri.

Verkefnastjórnun

Landsvirkjun Power hefur á að skipa fjölda verkefnisstjóra sem hafa áralanga reynslu af stjórnun flókinna og áhættusamra verkefna. Verkefni eins og bygging virkjana, eru meðal umfangsmestu verkefna sem unnin eru á Islandi. Við þau verkefni hefur á undanförnum áratugum verið viðhöfð skilvirk verkefnastjórnun út á við sem vakið hefur athygli víða um heim.

Landsvirkjun Power hefur komið sér upp samræmdu verklagi við undirbúning, rekstur og framkvæmd verkefna til að bæta stjórnun og auka fjárhagslega hagræðingu hjá fyrirtækinu.

Rannsóknir

Á vegum Landsvirkjun Power fara fram ítarlegar umhverfisrannsóknir er tengjast undirbúningi, framkvæmd og rekstri vatnsafls- og jarðvarmavirkjana. Við undirbúning virkjana fara af stað margvíslegar rannsóknir er miða að því að afla þekkingar og gagna er nýtast við áætlanagerð, hönnun og mat á umhverfisáhrifum framkvæmda. Auk þess fara fram ítarlegar vöktunarrannsóknir er tengist bæði undirbúningi og rekstri virkjana.


Stoðflokkar



Leita á vefnum


Útlit síðu:

Um Landsvirkjun Power

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica