Tilgangur
LV Power gerir

Landsvirkjun Power gerir

Landsvirkjun Power heldur við og eflir í einu félagi sérhæfða þekkingu á sviði viðskiptaþróunar, verkefnastjórnunar og tengdri þekkingu vegna virkjana og raforkukerfa innanlands sem erlendis. Tilgangur fyrirtækisins er einnig að leita að og taka þátt í fjárfestingarverkefnum innanlands og erlendis.

Landsvirkjun Power mun hafa umsjón með undirbúningi og framkvæmd nýrra virkjana fyrir Landsvirkjun. Landsvirkjun Power tekur jafnframt yfir eignarhluti Landsvirkjunar í dóttur- og hlutdeildarfélögum sem starfa að ráðgjafar- og fjárfestingarverkefnum erlendis.

Nýjar virkjanir sem fyrirhugaðar eru í Þjórsá og á Norðausturlandi, verða í eigu og á ábyrgð Landsvirkjunar. Landsvirkjun Power mun sjá um undirbúning, hönnun og byggingu slíkra mannvirkja og eru þau verkefni unnin fyrir Landsvirkjun.

Viðskiptaþróun Landsvirkjun Power sér um arðsemis- og áhættugreiningu vegna nýrra verkefna. Hún hefur einnig umsjón með fjármagnsskipan og fjármögnun, samningamálum og rekstri félaga erlendis.

Undir viðskiptaþróun heyra dóttur- og hlutdeildarfélög Landsvirkjun Power.


Stoðflokkar



Leita á vefnum


Útlit síðu:

Um Landsvirkjun Power

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica