Búðarhálsvirkjun
Uppsett afl Búðarhálsvirkjunar verður u.þ.b. 80 MW og orkugeta hennar verður um 585 GWst/ári.
Stífla mun liggja þvert yfir farveg Köldukvíslar skammt ofan við ármót Köldukvíslar og Tungnaár og yfir gömlu Sporðöldukvísl (nú útfall Hrauneyjarfossstöðvar) þar nokkru ofar. Stíflan verður hefðbundin jarðstífla með kjarna, síu, stoðfyllingu og grjótvörn. Með stíflunni myndast inntakslón, Sporðöldulón, og er áætluð stærð þess um 7 km2 að flatarmáli við venjulegt rekstrarvatnsborð.
Aðrennslisskurður verður sprengdur í gegnum berglög í Búðarhálsi. Lengd skurðarins verður um 420 m. Við enda aðrennslisskurðarins verður steypt inntaksvirki með tveimur rásum. Þar taka við um 4 km löng aðrennslisgöng frá gangnainntaki að jöfnunarþró.
Stöðvarhúsið verður ofanjarðar, grafið inn í hlíð Búðarháls við Sultartangalón. Gert er ráð fyrir tveimur vélum. Frárennslisskurður verður grafinn frá stöðvarhúsi og endar hann í Sultartangalóni um 330 m frá húsinu.
Á árunum 2001 og 2002 var unnið að undirbúningi vegna virkjunarinnar og var þá grafið á stöðvarhússtæði fyrir stöðvarhúsi að hluta, fallpípum, inntaki, jöfnunarþró að hluta og í aðrennslisskurði að hluta. Einnig var þá lagður um 7 km aðkomuvegur með bundnu slitlagi að fyrirhuguðu stöðvarhúsi Búðarhálsvirkjunar frá aðalvegi (þjóðvegur 26) á milli Sultartangastöðvar og Hrauneyjafossstöðvar. Á þessari leið var Tungnaá brúuð og er brúarstæðið rétt ofan við eldri kláfferju, um 1 km fyrir ofan Hald. Um 6 km tengivegur var lagður frá stæði fyrirhugaðrar stíflu að aðkomuvegi að stöðvarhúsi.
