Undirritun samnings um aðstoð við gangsetningu virkjunar á Grænlandi
Þann 19. október 2009 var skrifað undir samning milli Ístaks og Landsvirkjunar Power um aðstoð við gangsetningu 15 MW vatnsaflsvirkjunar við Sisimiut á Vestur Grænlandi og um rekstur virkjunarinnar í eitt ár eftir að virkjunin hefur verið afhent Nukissiorfiit (Orkustofnun Grænlands) sem er eigandi virkjunarinnar.
Samkvæmt samningnum mun Landsvirkjun Power einnig annast kennslu og þjálfum starfsfólks virkjunarinnar. Starfsmenn Orkusviðs Landsvirkjunar munu vinna að verkefninu ásamt starfsmönnum Landsvirkjunar Power samkvæmt samningi milli aðila.

