Djúpborun (IDDP)

Djúpborun - IDDP

Frá árinu 2000 hafa orkufyrirtækin Hitaveita Suðurnesja, Landsvirkjun og Orkuveita Reykjavíkur unnið saman að fræðilegum athugunum á nýtingu jarðgufu í yfirmarks­ástandi. Frá vordögum 2004 hefur Orkustofnun tekið jafnan þátt í verkefninu.

Vefur djúpborunarverkefnisins

Þurrgufa undir háþrýstingi og um 400-600°C heit er í svonefndu yfirmarksástandi og hefur hvergi verið nýtt til raforkuframleiðslu. Til þess að nálgast hana þarf að bora um 4-5 km djúpar holur. Fræðilega gætu slíkar borholur gefið allt að 10-falt afl núverandi borhola. Hins vegar er mikil óvissa um efnasamsetningu borholuvökva á svo miklu dýpi og margir tæknilegir flöskuhálsar sem komast þarf í gegnum áður en unnt verður að segja til um hvort orkuvinnsla úr djúpholum er arðbær. Hinn mikli hiti og þrýstingur allt að 250 loftþyngdir skapa einnig margvíslega tæknilega örðugleika sem ekki er enn séð hvernig leysa eigi.

Árið 2006 var tekin ákvörðun um að bora djúpholu við Kröfluvirkjun, sem Landsvirkjun rekur. Hitaveita Suðurnesja og Orkuveita Reykjavíkur hafa tekið ákvörðun um að bora einnig djúpholu hvor á sínu virkjunarsvæði. Samkomulag er um að taka sameiginlega þátt í vísindarannsóknum við djúpborun við Kröflu. Í júlí 2007 var undirritaður nýr samningur um verkefnið og hefur nú Alcoa bæst í hóp þátttakenda. Síðan hefur verið unnið að efniskaupum og samningum um framkvæmd borana undir umsjón Bjarna Pálssonar verkfræðings hjá Landsvirkjun Power.

Djúpborunarverkefnið er mjög umfangsmikið og kostnaðarsamt langtíma rannsóknar- og þróunarverkefni. Sennilega geta liðið allt að 10 ár þar til árangur kemur í ljós. Að mati Landsvirkjun Power mun þetta rannsóknarverkefni ekki hafa áhrif á framvindu annarra virkjunarrannsókna og -framkvæmda á næstu árum.

Grein á vef Popular Science

Grein á vef BBC News

Útvarpsþáttur á BBC


Stoðflokkar



Leita á vefnum


Útlit síðu:

Verkefni

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica