Jarðvarmavirkjanir á Norðausturlandi
Jarðvarmavirkjanir á norðausturlandi

Jarðvarmavirkjanir á Norðausturlandi

Unnið er að rannsóknum og öðrum undirbúningi vegna virkjunar háhitasvæðanna í Þingeyjarsýslum á Þeistareykjum og í Gjástykki og frekari virkjunar við Kröflu og Bjarnarflag. Svæðisskipulag vegna þessarar nýtingar var staðfest í janúar 2008.

Undirbúningur virkjana á þessum háhitasvæðum er í samræmi við viljayfirlýsingar Alcoa frá maí 2006 við ríkisstjórnina og Húsavíkurbæ annars vegar og Landsvirkjun og Þeistareiki ehf. hins vegar um álver á Bakka við Húsavík og raforkuöflun til þess.

Fyrirhuguð framleiðslugeta álversins er 250 þúsund tonn á ári, til þess þarf um 400 MW uppsett afl auk varafls. Gangsetning fyrri áfanga álvers og virkjana er áætluð á árinu 2012 og þess síðari á árinu 2015.

  • Landsvirkjun rekur 60 MW virkjun í Kröflu en fyrirhugað er að stækka virkjunina um 120 til 150 MW.
  • Í Bjarnarflagi rekur Landsvirkjun 3 MW virkjun en fyrir liggur samþykkt mat á umhverfisáhrifum um nýja 90 MW virkjun á því svæði.
  • Landsvirkjun og Þeistareykir ehf. rannsaka sameiginlega háhitasvæðið á Þeistareykjum en þar er gert ráð fyrir 150 MW virkjun.
  • Unnið er að rannsóknum á háhitasvæðinu í Gjástykki, en horft er til virkjunar þess svæðis í því tilfelli að hin svæðin gefi ekki næga orku.

Senda grein


Stoðflokkar



Leita á vefnum


Útlit síðu:

Verkefni

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica