Kárahnjúkavirkjun
Uppsett afl Kárahnjúkavirkjunar er 700 MW og orkugeta hennar er 4.600 GWst/ári. Með Kárahnjúkavirkjun eru virkjaðar í einni virkjun jökulárnar Jökulsá á Dal og Jökulsá í Fljótsdal. ásamt hliðarám á Hraunum þar austur af.
Megin uppistöðulón virkjunarinnar er Hálslón í Jökulsá á Dal inn af Kárahnjúkum. Í Jökulsá í Fljótsdal er einungis lítið inntakslón norðan Eyjabakka, Ufsarlón, og í Kelduá þar fyrir austan er lítið miðlunarlón, Kelduárlón. Vatnið er leitt um jarðgöng að Fljótsdalsstöð í Valþjófsstaðarfjalli og þaðan um jarðgöng og skurð í Jökulsá í Fljótsdal. Kárahnjúkavirkjun er mikið neðanjarðarmannvirki, jarðgöng eru samtals rúmlega 70 km löng.
Hálslón
Lónið er myndað með þremur stíflum. Stærst þeirra er Kárahnjúkastífla, um 200 metra há, innst í Hafrahvammagljúfrum. Hún er grjótstífla með steyptri þekju, ein sú hæsta sinnar tegundar í heiminum. Undir Kárahnjúkastíflu er botnrás og á vesturbakkanum er steypt yfirfall. Beggja vegna við Kárahnjúkastíflu eru hliðarstíflur, Desjarárstífla að austanverðu og Sauðárdalsstífla að vestanverðu, gerðar úr möl og grjóti með þéttikjarna úr jökulruðningi. Hálslón er 25 km langt og 57 km2 að flatarmáli og nær frá Kárahnjúkum inn að Brúarjökli.
Aðrennslisgöng
Frá Hálslóni eru 40 km löng og rúmlega 7 sver aðrennslisgöng. Þau liggja í vestur undir Vesturöræfum og síðan í norður undir Fljótsdalsheiði. Úr suðri tengjast 13 km löng jarðgöng frá Ufsarlóni. Aðrennslisgöngin voru að mestu heilboruð með þremur jarðgangaborvélum. Í Valþjófsstaðarfjalli greinast göngin á tvenn lóðrétt 420 metra há fallgöng sem klædd eru að innan með stáli.
Fljótsdalsstöð
Sjálf raforkuvinnslan fer fram í Fljótsdalsstöð. Þar eru sex vélasamstæður með tilheyrandi búnaði, um 115 MW hver. Hverflarnir eru af Francis gerð. Framan við stöðvarhellinn er sérstakur spennahellir með aðalspennum virkjunarinnar. Þaðan fer rafstraumurinn með strengjum út úr fjallinu á 245 kV spennu að tengivirki Landsnets. Framan við aðkomugöngin er þjónustuhús stöðvarinnar innst í Fljótsdal.
