Orkuflutningur
Uppbygging orkuflutningskerfis á Reykjanesskaga
Landsnet vinnur nú að undirbúningi að uppbyggingu og styrkingu á orkuflutningskerfinu frá Hellisheiði að Hafnarfirði annars vegar og á Reykjanesskaga hins vegar. Markmið þessara framkvæmda er að byggja flutningskerfið upp á þann hátt að hægt sé að bæta við virkjunum og koma upp nýjum orkufrekum iðnaði eða annarri orkufrekri starfsemi.
Landsvirkjun Power annast alla verkefnisstjórn við undirbúning þessara framkvæmda. Í verkefninu er innifalið annars vegar verkhönnun og setning hönnunarforsenda og hins vegar mat á umhverfisáhrifum og skipulagsáætlanir vegna háspennulína, háspennustrengja, tengivirkja og aðveitustöðva. Verkefnið hófst á síðast ári og er gert ráð fyrir að því verði að fullu lokið í febrúar 2009.
Flutningsvirki vegna Fjarðaáls í Reyðarfirði
Byggingu flutningsvirkja vegna Fjarðaáls er að mestu lokið og hafa starfsmenn Landsvirkjun Power verið verkefnisstjórar við þær framkvæmdir. Nú er unnið að ýmsum endurbótum, frágangi gagna og nauðsynlegri skýrslugerð.
Þá hefur verið unnið að lagningu ljósleiðara frá aðveitustöð á Rangárvöllum við Akureyri að tengivirki í Fljótsdal ásamt undirbúningi að lagningu ljósleiðara frá Fjarðaáli á Reyðarfirði að aðveitustöðinni að Hólum í Hornafirði og hefur Landsvirkjun Power séð um alla verkefnisstjórnun.
Flutningsvirki vegna stækkunar Norðuráls á Grundartanga
Starfsmenn Landsvirkjun Power hafa verið verkefnisstjórar við byggingu flutningsvirkja vegna stækkunar Norðuráls í Hvalfirði. Þeim verkefnum er að mestu lokið og er nú unnið að frágangi gagna og nauðsynlegri skýrslugerð. Þó er stækkun á tengivirkinu á Kolviðarhóli vegna véla 3 og 4 í Hellisheiðarvirkjun ekki lokið. Unnið hefur verið að undirbúningi verksins og er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í febrúar.
