Virkjanir í Þjórsá
Um nokkurra ára skeið hefur verið unnið að undirbúningi nýrra virkjana í Þjórsá neðan Búrfells. Fyrirhugað er að reisa þar þrjár virkjanir til að nýta fallið í ánni.
Tenging við vef virkjana í Þjórsá
Efsta virkunin er nefnd Hvammsvirkjun, síðan kemur Holtavirkjun og neðsta virkjunin er nefnd Urriðafossvirkjun. Hvammsvirkjun verður u.þ.b. 80 MW að afli og orkugeta hennar um 630 GWst/ári. Inntakslón Hvammsvirkjunar, Hagalón, verður myndað með stíflu í Þjórsá ofan við Minnanúpshólma og stíflugörðum á austurbakka árinnar. Stöðvarhús verður staðsett nærri norðurenda Skarðsfjalls í Landsveit í landi Hvamms og verður það að mestu leyti neðanjarðar. Frá inntaksmannvirkjum við Hagalón liggja um 400 m löng aðrennslisgöng að virkjuninni. Frá virkjun fellur vatnið um jarðgöng og síðan opinn skurð til Þjórsár neðan við Ölmóðsey.
Holtavirkjun verður u.þ.b. 50 MW að afli og orkugeta hennar verður um 390 GWst/ári. Inntakslón Holtavirkjunar, Árneslón, verður myndað með stíflu í Árneskvísl við bæinn Akbraut í Holtum og stíflugörðum í Árnesi. Veitumannvirki verða byggð við Búðafoss ofan við Árnes og þar verður stærstum hluta Þjórsár veitt í Árneskvísl. Stöðvarhúsið verður staðsett við enda stíflunnar við Akbrautarholt, og frá því mun liggja frárennslisskurður að mestu leyti grafinn í austurkvísl Þjórsár niður fyrir Árnessporð.
Virkjun við Urriðafoss verður u.þ.b. 125 MW að afli og orkugeta virkjunarinnar verður um 930 GWst/ári. Inntakslón virkjunarinnar, Heiðarlón, verður myndað með stíflu í Þjórsá við Heiðartanga og stíflugörðum upp eftir vesturbakka árinnar. Inntaksmannvirki verða í Heiðartanga og stöðvarhús neðanjarðar nærri Þjórsártúni. Frá stöðvarhúsinu munu liggja frárennslisgöng sem opnast út í Þjórsá nokkru neðan við Urriðafoss.
